Fotbolti.net
18.08.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Gagnrýnir Man Utd: Þetta er til skammar

,,Stjórnin stendur ekki við bakið á þjálfaranum"

Gagnrýnir Man Utd: Þetta er til skammar
Canon

Mynd: EPA

Fótboltasérfræðingar Sky Sports spjölluðu saman um sumargluggann hjá Manchester United þar sem félagið er aðeins búið að krækja í miðjumennina Youri Tielemans og Andrey Santos það sem af er sumars.
Jamie O'Hara, fyrrum leikmaður Tottenham, Wolves og Fulham meðal annars, segist ekkert botna í metnaðarleysinu innan herbúða Rauðu djöflanna.

„Man Utd hefði getað byggt lið sem berst um Englandsmeistaratitilinn. Hefði stjórnin stutt við bakið á Michael Carrick þá ætti liðið séns, en ég verð að segja að sumarglugginn hefur verið til skammar. Þeir réðu Carrick og sögðust ætla að standa við bakið á honum eftir að hann kom liðinu í Meistaradeildina á síðustu leiktíð, en þeir eru bara búnir að gefa honum tvo nýja leikmenn," sagði O'Hara. „Youri Tielemans eru frábær kaup en við erum ekki einu sinni vissir hvort Andrey Santos sé góður fótboltamaður eða ekki.

„Man Utd er að fara að spila í Meistaradeildinni en þeir eru langt frá því að vera nógu góðir. Liðið er með sömu varnarlínu og það var með fyrir þremur eða fjórum árum síðan. Luke Shaw og Harry Maguire eru að fara að eiga annað tímabil saman í vörninni og það er ekki nógu gott. Við erum að tala um Manchester United. Þetta er félag sem ætti að reyna að berjast um titilinn.

„Þetta tímabil væri kjörið til að komast aftur í titilbaráttuna þar sem öll stærstu lið deildarinnar, nema Arsenal, eru komin með nýjan þjálfara."
Gagnrýnir Man Utd: Þetta er til skammar
Canon

Mynd: EPA

Gagnrýnir Man Utd: Þetta er til skammar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.