Fotbolti.net
18.08.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Gasperini fær ósk sína uppfyllta

Gasperini fær ósk sína uppfyllta
Canon

Mynd: EPA

AS Roma er að krækja í portúgalska táninginn Rodrigo Mora sem kemur úr röðum FC Porto. Fabrizio Romano er meðal fréttamanna sem segja frá og hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.
Mora er aðeins 19 ára gamall og hjálpaði Porto að vinna portúgölsku deildina á síðustu leiktíð. Hann hefur í heildina komið með beinum hætti að 22 mörkum í 80 leikjum með aðalliðinu þrátt fyrir ungan aldur.

Romano segir að Roma borgi 25 milljónir evra til að kaupa Mora en Porto heldur 50% af endursölurétti leikmannsins. Rómverjar geta þó keypt söluréttinn til sín fyrir 25 milljónir til viðbótar.

Mora er sóknartengiliður að upplagi og hefur verið lykilmaður upp unglingalandslið Portúgal, með 17 mörk í 37 leikjum.

Gian Piero Gasperini þjálfari hefur gríðarlega miklar mætur á Mora og vonast til að bæta einnig nýjum kantmanni við hópinn á næstu vikum.

Mora er fimmti leikmaðurinn sem Roma kaupir í sumar og er liðið einnig að skoða kantmennina Malick Fofana og Luis Henrique sem leika fyrir Lyon og Inter.

Þess má geta að Portúgalsmeistararnir eru að skoða mexíkóska framherjann Santiago Giménez hjá Milan. Porto vill fá Giménez á lánssamningi með kaupmöguleika.
Gasperini fær ósk sína uppfyllta
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.