18.08.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Moreira í læknisskoðun hjá Milan - Kostar 50 milljónir

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska stórveldið AC Milan er búið að bóka flug og læknisskoðun fyrir kantmanninn fjölhæfa Diego Moreira.
Moreira er 22 ára gamall og kemur til Milan úr röðum Strasbourg fyrir um 50 milljónir evra. 10 til 20 milljónir geta bæst við upphæðina í árangurstengdar aukagreiðslur.
Moreira, sem á fjóra A-landsleiki að baki fyrir Belgíu, skoraði fimm mörk og gaf níu stoðsendingar í 42 leikjum með Strasbourg á síðustu leiktíð.
Hann verður fimmti leikmaðurinn til að ganga í raðir AC Milan í sumar eftir að félagið krækti einnig í Goncalo Ramos, Mario Gila, Francesco Camarda og Sankhoun Diawara.