Fotbolti.net
18.08.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson

Reijnders lentur í Sádi-Arabíu

Kostar rúmlega 50 milljónir punda

Stoppaði stutt í Manchester.

Stoppaði stutt í Manchester.

Canon

Mynd: Man City

Hollenski landsliðsmaðurinn Tijjani Reijnders er lentur í Sádi-Arabíu þar sem hann gengst undir læknisskoðun hjá Al-Qadsiah áður en hann skrifar undir samning við félagið.
Reijnders færist nær Sádi-Arabíu
TENGT EFNI

Reijnders færist nær Sádi-Arabíu

Al-Qadsiah borgar rúmlega 50 milljónir punda til að kaupa Reijnders, sem var fenginn til Man City í fyrrasumar fyrir örlítið lægri upphæð.

Reijnders spilaði yfirleitt sem framsækinn miðjumaður hjá Man City á síðustu leiktíð og kom beint að 15 mörkum í 47 leikjum.

Hjá Al-Qadsiah mun hann spila með leikmönnum á borð við Nacho Fernández, Julian Weigl, Otávio, Mateo Retegui og Julian Quinones.

City þarf nýja miðjumenn til að fylla í skörðin sem hafa myndast í sumar. Auk Reijnders er Rodri á leið burt og þá er Bernardo Silva einnig búinn að yfirgefa félagið. Elliot Anderson var keyptur frá Nottingham Forest og ljóst er að stórveldinu vantar fleiri menn.

Nico González, Mateo Kovacic og Matheus Nunes eru miðjumennirnir sem eru eftir í hópi Enzo Maresca, auk Anderson.
Kom að 15 mörkum í 47 leikjum.

Kom að 15 mörkum í 47 leikjum.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.