Fotbolti.net
18.08.26 - 11:06
Kári Snorrason

Valur kveður Bjarna (Staðfest)

Gekk í raðir Vals 2024.

Gekk í raðir Vals 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur hefur kvatt Bjarna Mark Antonsson í færslu á samfélagsmiðlum en hann er á förum frá félaginu og er að ganga í raðir sænska C-deildar liðsins Trelleborg.

Sænska félagið á eftir að tilkynna um komu Bjarna en hann var ekki í leikmannahóp Vals í gær sem mætti KA. Samningur Bjarna rennur út eftir tímabil.
Bjarni Mark til Svíþjóðar
TENGT EFNI

Bjarni Mark til Svíþjóðar

Eftir Evrópuleikinn gegn Nordsjælland fór Bjarni til Svíþjóðar og æfði með sænska C-deildar liðinu.Bjarni er þrítugur og getur bæði spilað í varnarlínunni og miðsvæðis.

Hann hefur komið við sögu í 14 deildarleikjum í ár, skorað eitt mark og lagt upp tvö. Hann skoraði í eina bikarleik Vals á tímabilinu og kom við sögu í öllum Evrópuleikjunum.

Bjarni, sem er uppalinn í KF og KA, þekkir vel til í Svíþjóð eftir að hafa spilað með Kristianstad og Brage.

Trelleborg er í efsta sæti Ettan Norra og með áframhaldandi velgengni verður liðið í næstefstu deild á næsta tímabili. Andreas Granqvist, fyrrum landsliðsfyrirliði Svía, er þjálfari Trelleborg.

Hefur komið við sögu í 14 deildarleikjum á tímabilinu.

Hefur komið við sögu í 14 deildarleikjum á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.