Fotbolti.net
18.08.26 - 14:14
Kári Snorrason

Vieira snýr aftur í ræturnar og tekur við Senegal (Staðfest)

Tekinn við Senegal.

Tekinn við Senegal.

Canon

Mynd: EPA

Patrick Vieira hefur verið ráðinn sem nýr landsliðsþjálfari Senegals. Hann tekur við af Pape Thiaw sem var látinn taka poka sinn eftir HM í sumar.

Vieira hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Genoa síðasta vetur. Hann hefur einnig stýrt Strasbourg, Crystal Palace, Nice og New York City FC á þjálfaraferlinum.

Vieira er fæddur í Senegal en fjölskylda hans flutti til Frakklands þegar hann var átta ára gamall. Hann valdi að spila fyrir franska landsliðið og vann HM 1998 og EM 2000 með Frökkum.

Með ráðningu Patrick Vieira getur miðjumaðurinn Pape Gueye snúið aftur í liðið. Hann sagðist ekki ætla að spila aftur fyrir landsliðið á meðan Pape Thiaw væri með stjórnartaumana í viðtali eftir að liðið féll úr leik gegn Belgíu í 32-liða úrslitum á HM í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.