Coventry 3 - 2 QPR
0-1 Lyndon Dykes ('41 , víti)
1-1 Matthew Godden ('44 )
2-1 Callum OHare ('50 )
2-2 Yoann Barbet ('75 )
3-2 Kyle McFadzean ('84 )
0-1 Lyndon Dykes ('41 , víti)
1-1 Matthew Godden ('44 )
2-1 Callum OHare ('50 )
2-2 Yoann Barbet ('75 )
3-2 Kyle McFadzean ('84 )
Einn leikur fór fram í ensku Championship deildinni í kvöld, fyrsti leikur 2. umferðar. QPR hafði unnið í fyrstu umferðinni og heimsótti liðið Coventry sem hafði tapað í fyrstu umferð.
Lyndon Dykes kom gestunum yfir úr vítaspyrnu á 41. mínútu en Matthew Godden sá til þess að staðan var jöfn í hléi, 1-1.
Callum OHare kom heimamönnum yfir á 50. mínútu en Yoann Barbet jafnaði leikinn á 75. mínútu. Það var svo Kyle McFadzean sem skoraði sigurmarkið í leiknum og kom það hjá heimamönnum. McFadzean skallaði knöttinn í netið eftir hornspyrnu Gustavo Hamer og öskraði í kjölfarið af fögnuði. Þetta var fyrsta mark McFadzean fyrir þá ljósbláu. Kyle hafði klúðrað góðu færi skömmu áður svo honum var einnig létt að hafa sett þennan bolta í netið.
Coventry er með þrjú stig eftir leikina tvö líkt og QPR. 2. umferðin heldur áfram á morgun.
Athugasemdir