Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 18. september 2020 07:00
Aksentije Milisic
„Messi var aldrei partur af plönum Inter"
Mynd: Getty Images
Steven Zhang, formaður Inter Milan, segir að félagið hafi aldrei planað það að reyna fá Lionel Messi til liðsins.

Messi vildi fara frá Barcelona eftir síðasta tímabil og þá var Inter ásamt Manchester City, sterklega orðað við Argentínumanninn. Inter reyndi aldrei að fá hann samkvæmt Zhang.

„Svona fjárfesting getur ekki verið hluti af okkar plönum, allavega ekki eins og er," sagði Zhang um málið.

„Við förum okkar leið og plönum fyrir framtíðina og þannig ætlum við að ná okkar stærstu markmiðum. Planið er að láta félagið vaxa bæði sem knattspyrnufélag og fyrirtæki."

Inter endaði í 2. sæti ítölsku deildarinnar á síðasta tímabili og tapaði í úrslitum Evrópudeildarinnar gegn Sevilla.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner