18.09.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
„Liverpool heppið að Brighton samþykkti ekki tilboðið“

Cody Gakpo var nálægt því að fara til Man City

Mynd: EPA

Liverpool var heppið að Brighton hafi hafnað tilboði þess í gambíska vængmanninn Yankuba Minteh en þetta segir James Pearce, blaðamaður Athletic.
Liverpool fór á fullt undir lok félagaskiptagluggans í leit að vængmanni sem gæti leikið hægra megin. Á sama tíma var planið að nota Bradley Barcola vinstra megin í stað Cody Gakpo.
Ismaila Sarr og Yankuba Minteh voru þeir leikmenn sem félagið reyndi hvað mest við en Brighton hafnaði meðal annars tveimur tilboðum í Minteh.
Á sama tíma var Liverpool í viðræðum um að selja Gakpo til Manchester City fyrir 85 milljónir punda, en hætti við söluna þegar ljóst varð að annar vængmaður kæmi ekki inn.
„Ég held að Liverpool geti talið sig heppið að Brighton ákvað að hafna þessum 50 og 60 milljóna punda tilboðum í Minteh. Ef Brighton hefði samþykkt það þá hefði Gakpo farið til Manchester City,“ sagði Pearce.
Gakpo hefur síðan byrjað tímabilið frábærlega með tvö mörk og fjórar stoðsendingar í aðeins fimm leikjum. Það gæti því reynst lán í óláni fyrir Liverpool að samkomulag náðist ekki um Minteh, enda virðist Hollendingurinn ekki á þeim buxunum að gefa byrjunarliðssætið frá sér.