Fotbolti.net
19.01.05 - 07:43
Magnús Már Einarsson

Völler aftur til Leverkuesen (Staðfest)

Völler aftur til Leverkuesen (Staðfest)
Canon
Rudi Völler hefur verið ráðinn yfirmaður íþróttamála hjá Bayer Leverkusen. Þessi 44 ára gamli Þjóðverji hefur áður sinnt þessari stöðu hjá Leverkusen en hann hætti í henni fyrir fjórum árum til að taka við þýska landsliðinu.
Hann hætti með þýska landsliðið eftir EM síðastliðið sumar og tók við Roma ekki löngu síðar. Hann hætti hinsvegar með Roma eftir aðeins einn mánuð í starfi og nú hefur hann skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Leverkusen þar sem hann verður eins og fyrr segir yfirmaður íþróttamála.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.