þri 19. janúar 2021 21:24
Aksentije Milisic
Reykjavíkurmótið: KR og Fylkir með sigra - Víkingur valtaði yfir Þrótt
Þrenna.
Þrenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þremur leikjum var að ljúka í Reykjavíkurmótinu en spilað er í A og B riðli.

Á Wurth vellinum áttust við Fylkir og Fram í B-riðlinum og lauk leiknum með 3-2 sigri Fylkis.

Albert Hafsteinsson kom Fram yfir strax á fyrstu mínútu en Óskar Borgþórsson jafnaði metin fyrir heimamenn. Undir lok fyrri hálfleiks kom Orri Hrafn Kjartansson Fylki yfir og staðan 2-1 í hálfleik.

Í byrjun seinni hálfleiks Aron Snær Ingason metin fyrir Frammara en það var svo Hákon Ingi Jónsson sem gerði sigurmarkið fyrir Fylki á 62. mínútu og þar við sat.

Í sama riðli mættust KR og Fjölnir og þar vann KR 3-2 sigur líkt og Fylkir. Fjölnir komst í tvígang í forystu og leiddi í hálfleik en að lokum vann KR. Óskar Örn Hauksson gerði þrennu fyrir KR í leiknum.

Í A-riðlinum mættust Þróttur R og Víkingur R og átti Pepsi Max deildarliðið í engum vandræðum með Þróttara og vann Víkingur öruggan 6-1 sigur.

Leiknir vann þá 1-0 sigur á ÍR í Breiðholtsslag.

Fylkir 3-2 Fram
0-1 Albert Hafsteinsson ('1)
1-1 Óskar Borgþórsson ('25)
2-1 Orri Hrafn Kjartansson ('45)
2-2 Aron Snær Ingason ('48)
3-2 Hákon Ingi Jónsson ('62)

KR 3-2 Fjölnir
0-1 Viktor Andri Hafþórsson ('24)
1-1 Óskar Örn Hauksson ('32)
1-2 Arnór Breki Ástþórsson ('41)
2-2 Óskar Örn Hauksson ('52)
3-2 Óskar Örn Hauksson ('81)

Þróttur R 1-6 Víkingur R
Mörk Víkings: Helgi Guðjónsson, Nikolaj Hansen tvö, Erlingur Agnarsson, Tómas Guðmundsson og Sigurður Steinar Björnsson.
Mark Þróttar: Daði Bergsson

ÍR 0-1 Leiknir R
0-1 Viktor Marel Kjærnested ('41)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner