Fotbolti.net
19.01.21 - 21:00
Aksentije Milisic

Smith Rowe: Lít upp til Bruno Fernandes

Smith Rowe: Lít upp til Bruno Fernandes
Canon

Mynd: Getty Images

Emile Smith Rowe, leikmaður Arsenal, hefur verið að koma sterkur inn í liðið að undanförnu og staðið sig mjög vel.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur gefið stráknum tækifæri á þessari leiktíð og hefur Smith-Rowe gripið það.

Hann lagði upp eitt mark í 3-0 sigri á Newcastle í gær og þá skaut hann liðinu áfram í FA-bikarnum gegn Newcastle á dögunum.

Hann er skapandi leikmaður sem er óhræddur að keyra á varnir andstæðinganna.

Smith Rowe, sagði eftir leikinn í gær, að hann liti mikið upp til Bruno Fernandes, leikmanns Manchester United.

„Ég lít upp til Bruno (Fernandes). Tölfræðin hans er sturluð og hvernig hann spilar leikinn er heillandi."

Bruno kom til United fyrir rúmu ári síðan en hann hefur gjörbreytt spilamennsku liðsins sem er nú í toppbaráttunni í Ensku úrvalsdeildinni.
Smith Rowe: Lít upp til Bruno Fernandes
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.