Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 19. febrúar 2021 14:30
Elvar Geir Magnússon
Benzema tæpur fyrir leikinn gegn Atalanta
Karim Benzema.
Karim Benzema.
Mynd: Getty Images
Karim Benzema var ekki með Real Madrid á æfingu dagsins og talað er um að franski sóknarmaðurinn sé tæpur fyrir Meistaradeildarleikinn gegn Atalanta á miðvikudag.

Spænskir fjölmiðlar segja að Benzema muni missa af La Liga leiknum gegn Real Valladolid á morgun.

Madrídarliðið verður einnig án Carvajal, Eder Militao, Sergio Ramos, Marcelo, Federico Valverde, Alvaro Odriozola, Eden Hazard og Rodrygo á morgun.

Sergio Ramos missir líklega af báðum viðureignunum gegn Atalanta. Fyrri leikurinn verður í Bergamó á miðvikudag en seinni leikurinn í Madríd þann 16. mars.

Real Madrid er í öðru sæti La Liga en hefur leikið leik meira en topplið Atletico Madrid sem er með sex stiga forystu.
Athugasemdir
banner
banner
banner