Fotbolti.net
19.05.04 - 14:29
Magnús Már Einarsson

Mpenza til Hamburg SV (Staðfest)

Mpenza til Hamburg SV (Staðfest)
Canon
Hamburg SV hefur gengið frá kaupum á belgíska sóknarmanninnum Emile Mpenza en hann kemur frá Standard Liege fyrrum liði Ásgeirs Sigurvinssonar. Hinn 25 ára Mpenza kostar Hamburg SV um 1,3 milljónir punda og mun hann koma til liðsins í sumar.
Mpenza hefur samykkt fjögurra ára samning við Hamburg sem að gefur honum um 220 milljónir króna íslenskar á ári.

Kappinn er ekki óvanur þýska boltanum því að hann skoraði 28 mörk í 79 leikjum með Schalke 04 áður en að hann fór til Standar Liege síðastliðið sumar.

Hann bað Aime Anthuenis landsliðsþjálfara Belga fyrir skömmu um frí frá landsliðinu en hann hefur skorað fjórtán mörk í 37 leikjum með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.