Fotbolti.net
19.06.26 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sáuð þið hann spila gegn Brasilíu?

Ayyoub Bouaddi.

Ayyoub Bouaddi.

Canon

Mynd: EPA

Öll stærstu félög Evrópu munu eflaust kanna stöðuna hjá Ayyoub Bouaddi eftir heimsmeistaramótið.

Sáuð þið hann spila gegn Brasilíu? Það var eins og hann væri á sínu fjórða heimsmeistaramóti með alla reynslu heimsins á herðum sér.
Fáir leikmenn hafa hækkað jafn hratt í áliti á síðustu mánuðum og Bouaddi. Miðjumaðurinn öflugi, sem fæddist árið 2007, hefur fest sig í sessi hjá Lille þrátt fyrir ungan aldur og vakti heimsathygli í fyrsta leik Marokkó á HM.

Bouaddi er með allan pakkann fyrir djúpan miðjumann; er líkamlega sterkur, með mikla yfirvegun og leikskilning í heimsklassa. Lille hefur engan áhuga á að selja hann í sumar, en talið er að félagið myndi krefjast allt að 70 milljóna evra fyrir hann. Arsenal, Paris Saint-Germain og Bayern München eru öll sögð fylgjast grannt með framvindu mála en verðmiðinn mun klárlega bara hækka eftir því sem líður á mótið.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 15. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Þessir gætu nýtt HM sem stökkpall að stærra félagi
TENGT EFNI

Þessir gætu nýtt HM sem stökkpall að stærra félagi

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.