Arsenal var ekki tilbúið að greiða metfé

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Englandsmeistarar Arsenal voru ekki reiðubúnir að borga þær 117 milljónir punda sem Aston Villa vildi fá fyrir enska landsliðsmanninn Morgan Rogers, en þetta segir David Ornstein hjá Athletic.

TENGT EFNI
Aston Villa búið að samþykkja risatilboð í Morgan Rogers
Chelsea náði munnlegu samkomulagi við Aston Villa um kaup á Rogers í gær. Tíðindin komu nokkuð á óvart þar sem Arsenal hafði lengi verið talið í bílstjórasætinu í baráttunni um sóknartengiliðinn.
Samkvæmt David Ornstein greiðir Chelsea 117 milljónir punda fyrir Rogers. Verði af félagaskiptunum verður hann dýrasti Englendingur sögunnar.
Ornstein sagði á YouTube-rás sinni að Villa hefði viljað fá hærri upphæð fyrir Rogers en Manchester City greiddi Nottingham Forest fyrir Elliot Anderson. Það skýri 117 milljóna punda verðmiðann, en Anderson kostaði 116 milljónir.
Arsenal hafði sett sér skýrt þak á hversu hátt félagið væri tilbúið að fara og ákvað að jafna ekki tilboð Chelsea. Ornstein segir jafnframt að Rogers hafi sjálfur kosið Chelsea fram yfir Arsenal.
Englandsmeistararnir ætla áfram að halda fast í þá stefnu að setja sér ákveðið hámarksverð í félagaskiptum. Arsenal hefur meðal annars áhuga á Bruno Guimaraes, miðjumanni Newcastle United, en mun beina sjónum sínum annað telji félagið verðið of hátt.