Fotbolti.net
19.07.26 - 16:02
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Tíu leikmenn ÍBV björguðu stigi

Omar Sowe skoraði og sá rautt nokkrum mínútum síðar

Omar Sowe skoraði og sá rautt nokkrum mínútum síðar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV 2 - 2 KA
0-1 André Rømer ('36 )
1-1 Omar Sowe ('68 )
1-2 Birgir Baldvinsson ('73 )
2-2 Vicente Rafael Valor Martínez ('85 , víti)
Rautt spjald: Omar Sowe, ÍBV ('77) Lestu um leikinn
ÍBV og KA skildu jöfn, 2-2, í fjörugum leik í 15. umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag.

Eyjamenn byrjuðu leikinn betur. Arnór Ingi Kristinsson kom sér í ágæta skotstöðu eftir sendingu frá Alex Frey Hilmarssyni en Ívar Arnbro Þórhallsson varði. Omar Sowe átti síðan tilraun í þverslána áður en Milan Tomic skaut í varnarmann.

Gestirnir unnu sig þó betur inn í leikinn og komust yfir nánast upp úr engu á 36. mínútu. Nýi maðurinn Andre Romer átti þá gott samspil við Birgi Baldvinsson áður en hann lét vaða utan teigs og boltinn söng í stönginni og inn.

Vicente Valor var nálægt því að jafna undir lok fyrri hálfleiks. Bjarki Björn Gunnarsson átti þá frábæran sprett og kom boltanum á Vicente, sem skaut í stöngina.

Eyjamenn bönkuðu fastar á dyrnar í síðari hálfleik og Omar jafnaði þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir. Felix Örn Friðriksson sendi hann í gegn og þrátt fyrir að vera með tvo varnarmenn í sér náði Omar að klára færið fram hjá Ívari.

Jafnt var þó aðeins í fimm mínútur. Birgir kom KA aftur yfir með skalla eftir hornspyrnu Hallgríms Mars Steingrímssonar.

Skömmu síðar bætti gráu ofan á svart hjá Eyjamönnum þegar Omar fékk að líta rauða spjaldið á 77. mínútu. Mikill atgangur var í vítateignum fyrir hornspyrnu og var Omar vísað af velli fyrir að skalla leikmann KA.

Manni færri héldu Eyjamenn áfram að sækja og uppskáru vítaspyrnu á 84. mínútu þegar Hans Viktor Guðmundsson felldi Eið Atla Rúnarsson innan teigs. Vicente steig á punktinn, sendi Ívar í rangt horn og jafnaði metin á ný.

Valdimar Logi Sævarsson fékk gullið tækifæri til að tryggja KA öll stigin undir lok venjulegs leiktíma eftir frábæra fyrirgjöf Hallgríms Mars en skallaði yfir markið.

Adam Ægir Pálsson og Daníel Dejan Djuric áttu síðan báðir skot yfir markið á lokamínútunum og niðurstaðan varð 2-2 jafntefli.

Stigið kemur sér ágætlega fyrir Eyjamenn í ljósi þess að þeir léku lokakaflann manni færri. ÍBV fer upp í sjötta sæti með 16 stig en KA er í tíunda sæti með 14 stig.
Andre Romer skoraði í fyrsta leik sínum með KA

Andre Romer skoraði í fyrsta leik sínum með KA

Canon

Mynd: KA

Vicente Valor bjargaði stigi fyrir Eyjamenn

Vicente Valor bjargaði stigi fyrir Eyjamenn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6Keflavík14-716
7ÍBV14-715
8Stjarnan15-815
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.