Klopp semur til fjögurra ára - Verður kynntur á föstudag

Jürgen Klopp er að taka við þýska landsliðinu

Mynd: EPA

Jürgen Klopp hefur samþykkt að taka við þýska landsliðinu og ef allt gengur að óskum verður hann kynntur sem nýr þjálfari liðsins á föstudag. Sky í Þýskalandi greinir frá.
Julian Nagelsmann lét af störfum eftir vonbrigði Þjóðverja á heimsmeistaramótinu.
Þýskaland féll óvænt úr leik gegn Paragvæ í 32-liða úrslitum og Nagelsmann ákvað í kjölfarið að stíga til hliðar.
Klopp hefur lengi verið orðaður við starfið og hefur nú samþykkt að taka við þýska landsliðinu. Hann mun skrifa undir fjögurra ára samning og mun því stýra Þjóðverjum á EM 2028 og á HM 2030.
Klopp hefur starfað sem yfirmaður alþjóðlegra fótboltamála hjá Red Bull undanfarin ár, en hefur nú fengið sig lausan þaðan eftir fund með Oliver Mintzlaff, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, í New York.
Gengið verður frá síðustu smáatriðunum eftir úrslitaleik HM í kvöld. Gangist allt eftir mun Klopp skrifa undir hjá þýska sambandinu í Frankfurt á föstudag.
Sambandið mun tilkynna ráðninguna formlega og halda blaðamannafund sama dag.
Klopp er því á leið aftur á hliðarlínuna eftir tveggja ára hlé frá þjálfun. Hann stýrði Liverpool síðast og var þar í níu ár, en hafði áður þjálfað Borussia Dortmund og Mainz.