Fotbolti.net
19.07.26 - 23:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Merino: Vissum að við værum betra fótboltalið

Merino: Vissum að við værum betra fótboltalið
Canon

Mynd: EPA

Spánn er heimsmeistari eftir sigur á Argentínu í úrslitaleiknum í kvöld.

Mikel Merino var að vonum í skýjunum eftir leikinn en hann er mjög bjartsýnn fyrir næstu árum hjá liðinu sem varð einnig Evrópumeistari fyrir tveimur árum.
„Þetta er ótrúlegt. Við erum með mikla gullkynslóð af ungum leikmönnum sem gefa allt í þetta fyrir þjóðina. Þessi leikur snerist um að halda einbeitingu. Við vissum að við værum betra fótboltalið," sagði Merino.

„Völlurinn var þurr, þetta var erfiður leikur því það var mikið keppnisskap í þeim þeir kunna að gera leikinn erfiðan fyrir okkur. Liðið var stórkostlegt og við áttum þetta skilið."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.