Fotbolti.net
24.08.26 - 21:27
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Man City hefur áhuga á Gakpo

Man City hefur áhuga á Gakpo
Canon

Mynd: EPA

Man City hefur áhuga á Cody Gakpo leikmanni Liverpool. Sky Sports greinir frá. Man City er að reyna að styrkja sóknarlínuna en Savinho er á leið til Tottenham og Omar Marmoush gæti farið sömu leið.
Man City hefur ekki sett sig í samband við Liverpool varðandi Gakpo sem er samningsbundinn félaginu til ársins 2030.

Liverpool er ekki tilbúið að selja Gakpo að svo stöddu en félagið vill fá tvo vængmenn til að það gæti orðið að veruleika. Gakpo var í byrjunarliðinu í fyrsta leik úrvalsdeildarinnar um helgina og skoraði í 2-2 jafntefli.

Liverpool hefur mikinn áhuga á Bradley Barcola og Ibrahim Mbaye leikmönnum PSG. Þá hefur Brighton hafnað nokkrum tilboðum frá Liverpool í Yakuba Minteh.

Man City hefur náð munnlegu samkomulagi við Palmeiras um kaup á Allan fyrir 34 milljónir punda en hann mun koma til með að taka við af Savinho.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.