Fotbolti.net
24.08.26 - 21:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Ítalía: Malen og Dybala fóru hamförum í stórsigri á Fiorentina

Ítalía: Malen og Dybala fóru hamförum í stórsigri á Fiorentina
Canon

Mynd: EPA

Donyell Malen og Paolo Dybala fóru hamförum í öruggum sigri Roma gegn Fiorentina í kvöld í síðasta leiknum í fyrstu umferð ítölsku deildarinnar.

Malen sá til þess að Roma var með forystuna í hálfleik eftir góðan undirbúning Dybala. Malen bætti svo öðru marki sínu við snemma í seinni hálfleik eftir sendingu frá Dybala.
Malen fullkomnaði síðan þrennu sína eftir laglegt samspil við Dybala sem lagði upp sitt þriðja mark. Niccolo Pisilli innsiglaði síðan sigurinn í lokin eftir vandræðagang í vörninni.

Albert Guðmundsson var ónotaður varamaður hjá Fiorentina.

Davide Frattesi var hetja Lazio í sínum fyrsta deildarleik fyrir liðið eftir komuna frá Inter í sumar. Hann skoraði eftir að hafa komið inn á sem varamaður fimm mínútum áður.

Kristófer Jónsson var í byrjunarliði Reggiana sem gerði 1-1 jafntefli gegn Ravenna í fyrstu umferð í B riðli C-deildarinnar.

Roma 4 - 0 Fiorentina
1-0 Donyell Malen ('27 )
2-0 Donyell Malen ('52 )
3-0 Donyell Malen ('60 )
4-0 Niccolo Pisilli ('86 )

Bologna 0 - 1 Lazio
0-1 Davide Frattesi ('59 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.