Ólafur Ingi: Algjörlega óboðlegur

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Já, bara mjög svekktur og ósáttur með fyrri hálfleikinn, fyrir utan kannsi fyrstu fimm,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, eftir 3-4 tap gegn Fram á Eikarvellinum í Kópavoginum í kvöld.
„Eftir það þá bara, spilum við leikinn í þeirra hendur. Allt of mikið af slökum sendingum sem bjóða upp á skyndisóknir, sem að þeir eru mjög öflugir í. Lélegir að klára augnablikin og koma boltanum frá. Búið að banka fyrir það augnablik og við höldum áfram að reyna að spila okkur úr erfiðum stöðum, í staðinn fyrir að snúa leiknum og snúa Fram liðinu. Ég er bara mjög óánægður með fyrri hálfleikinn,“ hélt hann svo áfram.
Annan leikinn í röð eru Blikarnir að fá á sig tvö mörk í beit innan leikja þar sem þeir hafa komist yfir, það hlýtur að vera pirrandi að fylgjast með því á hliðarlínunni.
„Já, það er búið að vera svo sem, gerast oftar í gegnum tímabilið. Það er klárt en bara heilt yfir, við gefum þennan leik frá okkur því að við, eins og ég sagði við vorum fínir í seinni hálfleik og vorum kannski óheppnir að ná ekki að jafna, en fyrri hálfleikur algjörlega óboðlegur.“
Blikaliðið hefur verið gagnrýnt fyrir kaflaskipta frammistöðu í sumar og að það sé erfitt að lesa í hver gildi þeirra séu. Aðspurður hvað þetta Blikalið vill standa fyrir í dag segir Óli:
„Við viljum bara standa fyrir heilsteyptan leik, heilt yfir. Auðvitað viljum við geta varið markið okkar, við erum að fá á okkur of mörg mörk og við viljum auðvitað skora mörk líka. Við viljum geta boðið upp á fjölbreyttan sóknarleik og öflugan varnarleik en við megum alls ekki enda mitt á milli eins og við gerum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við ætluðum að pressa þá hátt en mér fannst eins og það væri meira þannig að, sóknarlega í dag erum við að bjóða hættunni heim í nánast öllum aðgerðum og hleypum þeim inn í sinn leik sem er skyndisóknaleikur og það greip okkur í bólinu.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
