Fotbolti.net
19.08.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Batistuta til Al Arabi (Staðfest)

Batistuta fær góðan félagsskap í Katar.

Batistuta fær góðan félagsskap í Katar.

Canon
Gabriel Batistuta er þá formlega orðinn leikmaður Al Arabi í Katar en hann kemur til liðsins á frjálsri sölu. Þessi fyrrum sóknarmaður Fiorentina, Roma og Inter verður því liðsfélagi þjóðverjans Stefan Effenberg sem gekk til liðs við félagið fyrir skömmu. Meðal annarra reynslumikilla leikmanna sem komnir eru í deildina í Katar eru Thomas Hassler, Frank LeBoeuf, Mario Basler, Ali Benarbia og Romario.
Tvær aðrar samningslausar stjörnur eru að íhuga að slást í hópinn, Predrag Mijatovicoh Fernando Hierro. Þá er frakkinn Philippe Troussier væntanlega að verða landsliðsþjálfari Katar. Troussier var við stjórnvölinn hjá Japan á HM í fyrra og er viss um að ef hann gerist landsliðsþjálfari Katar muni það þýða mikla velgengni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.