Mikael: Mér finnst það skrýtið ef þeir hafa ekki brotið á honum
Auglýsing

Mikael Nikulásson þjálfari Njarðvíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael Nikulásson þjálfari Njarðvíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<i>„Fúll að tapa þessu. Við vorum að mér fannst mun betra liðið í þessum leik sérstaklega fyrstu 70 mínúturnar en þegar þeir fengu sóknir þá fengu þeir færi og við lendum undir eftir 12 mínútur. Þetta er held ég sjötti leikurinn sem við lendum undir á fyrstu 10 mínútunum og það er bara ófyrirgefanlegt.“</i>
Voru fyrstu við Mikaels Nikulássonar þjálfara Njarðvíkur eftir 1-3 tap hans manna gegn Selfoss og Rafholtsvellinum í Njarðvík í kvöld.

Arnar Logi Sveinsson kom Selfyssingum yfir eftir 12 mínútna leik en Njarðvíkingar voru ekki allskostar sáttir með markið og töldu að brotið hefði verið á Rúnari Gissurarsyni markverði þeirra.
„Ég skildi ekki alveg línuna hjá dómaranum þarna. Hann dæmdi allavega alltaf inn í teig hjá þeim en ég þarf bara að sjá það betur hvort það var brotið á honum. Mér finnst það skrýtið ef þeir hafa ekki brotið á honum en ef hann hefur brotið á honum finnst mér það mjög döpur dómgæsla.“
Gestirnir frá Selfossi komust í 2-0 eftir rúmlega klukkustundarleik með marki Inga Rafns Ingibergssonar en á 75,mínútu fengu heimamenn líflínu þegar Bergþór Ingi Smárason kom boltanum í netið. Fram að því höfðu Njarðvíkingar fengið nokkur ákjósanleg færi en Stefán Þór Ágústsson í marki gestanna séð við þeim.
„Hann var bara fyrir boltanum þeir skutu bara í hann. Það er ekki eins og hann hafi verið að verja þetta í hornunum. Fínasti markmaður og átti góðan leik en við fengum alltof mikið af færum til að vera ekki búnir að jafna leikinn í 1-1 og þá bara gerist þetta við erum að sækja á þá og svo allt í einu skyndi sókn og 2-0.“
Deildin er rétt rúmlega hálfnuð og Njarðvíkingar farnir að dragast aðeins frá toppliðunum. Markmið Njarðvíkinga er þó væntanlega ennþá að vera við toppinn þegar mótinu lýkur?
„Það er stefnan en við verðum að gera betur heldur en við höfum gert. Það er alveg klárt. Ef við förum ekki að gera það þá er ekkert langt í að við förum að dragast of langt aftur úr.“
Sagði Mikael en allt viðtalið má sjá í spilarnum hér að ofan.