Nú stendur yfir leikur HK og Breiðabliks, lokaleikur 8-liða úrslita Mjólkurbikarsins, í Kórnum í Kópavogi. Leikurinn hófst klukkan 20 og staðan er markalaus.
Í hálfleiknum var dregið í undanúrslitin.
HK/BREIÐABLIK - VÍKINGUR
FH - KA
Sigurliðið í leiknum í Kórnum mun fá heimaleik gegn ríkjandi Íslands- og bikarmeisturum Víkings. Eiður Smári Guðjohnsen og lærisveinar í FH mæta KA í Kaplakrika.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá Kórnum
Undanúrslitin verða leikin 31. ágúst og 1. september. Úrslitaleikurinn verður svo laugardaginn 1. október á Laugardalsvelli.
Athugasemdir