Fotbolti.net
19.08.26 - 19:25
Albert Guðmundsson

38 umferðir - 5 bestu leikmennirnir í Fantasy sem eru í undir 5% liða

38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

Canon

Mynd: Albert Guðmundsson

Nú eru aðeins tveir dagar til stefnu þangað til enski boltinn fer í gang og um leið Fantasy Premier League leikurinn vinsæli

38 umferðir er nýtt fantasy hlaðvarp Fótbolta.net, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrstu þrír þættir tímabilsins eru komnir inn á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net í hljóði og mynd.

38 umferðir x Fótbolti.net deildin er komin í loftið og er kóðinn: 10k1ov

Glæsilegir vinningar fyrir efstu sætin í boði samstarfsaðila 38 umferða.
Þáttastjórnendur hafa unnið heimavinnuna og sett saman lista yfir “5 bestu leikmennina í Fantasy sem eru í undir 5% liða”

Vuskovic 5.0m (Brighton)

Luka Vuskovic er 19 ára króatískur miðvörður sem Brighton keypti frá Tottenham á 46m punda eftir frábært lánstímabil hjá Hamburg. Þrátt fyrir ungan aldur skoraði hinn 193 sentímetra hái Vuskovic 6 mörk í 27 leikjum í þýsku Bundesligunni og var valinn í lið ársins. Hann vann 74,5% skallaeinvíga sinna og skilaði að meðaltali 12,5 varnarframlögum per 90 mínútur, sem bendir til að hann muni vera duglegur að sækja sér 2 aukastig fyrir varnarframlög (DefCon). Vuskovic er einnig stórhættulegur í föstum leikatriðum en hann hefur skorað 16 mörk í aðeins 78 byrjunarliðsleikjum á ferlinum. Byrjunarliðssætið er ekki alveg tryggt vegna samkeppni í vörn Brighton, en kaupverðið bendir sterklega til þess að félagið ætli honum stórt hlutverk. Vuskovic kostar aðeins 5.0m í Fantasy og situr í 2,7% liða, sem gerir hann að spennandi valkosti sem getur safnað stigum bæði með sóknar- og varnarframlögum.

Marco Palestra 5.5m (Chelsea)

Palestra er 21 árs vængbakvörður sem Chelsea keypti frá Atalanta á 47m punda. Ítalinn hefur verið að spila mjög sókndjarft á undirbúningstímabilinu og hentar vel leikstíl Xabi Alonso óháð leikkerfi hvort sem hann stillir upp í 3-4-2-1, 3-4-3 eða 4-4-2. Palestra skoraði 1 mark og lagði upp 4 mörk í 34 leikjum með Cagliari í fyrra og var valinn varnarmaður ársins í Serie A. Palestra er í einungis 2.7% liða í Fantasy eins og sakir standa og mun eflaust verðlauna eigendur sína ríkulega.

Tarik Muharemovic 5.0m (Leeds)

Muharemovic er 23 ára miðvörður sem Leeds keypti frá Sassuolo til að taka við sæti Patrik Struijk í liðinu. Muharemovic skoraði 4 mörk og lagði upp önnur 4 á tveimur tímabilum hjá Sassuolo. Muharemovic er hár og sterkur í loftinu sem er tilvalið til að sanka að sér varnarframlags-stigum (DefCon). Hjá Sassuolo náði hann sér að meðaltali yfir 10 varnarframlög í leik sem myndi skila honum tveimur auka stigum í Fantasy leiknum eftir reglubreytingar í fyrra. Örfáir leikmenn í ensku úrvalsdeildinni sláðu við þeirri tölfræði í fyrra. Muharemovic situr í aðeins 2,8% liða og Leeds eiga þægilegt leikjaprógramm þangað til þeir fara á Emirates í sjöttu umferð.

Kiernan Dewsbury-Hall 6.5m (Everton)

Dewsbury-Hall er 27 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem blómstraði á sínu fyrsta tímabili með Everton. Hann skoraði 8 mörk, lagði upp 7 og safnaði 151 stigi í Fantasy, þrátt fyrir að byrja tímabilið á aðeins 5.0m. Dewsbury-Hall tekur þátt í föstum leikatriðum Everton, skapar mikið af færum og getur einnig safnað varnarframlags-stigum. Hann hefur haldið uppteknum hætti á undirbúningstímabilinu. Dewsbury-Hall kostar nú 6.5m en er aðeins í um 3,5% liða, þrátt fyrir að hafa skilað að meðaltali 5 stigum í hverjum byrjunarliðsleik í fyrra. Everton á þægilegt leikjaprógramm í upphafi tímabils og mætir tveimur nýliðum í fyrstu 5 umferðunum. Dewsbury-Hall gæti því reynst einn öruggasti og vanmetnasti miðjumaðurinn undir 7.0m.

Kevin Schade 6.0m (Brentford)

Schade er 24 ára þýskur kantmaður sem spilar á vinstri kanntinum hjá Brentford. Hann skoraði 8 mörk, lagði upp 5 og safnaði 125 stigum á síðasta tímabili, eftir að hafa skorað 11 mörk tímabilið þar á undan. Schade komst í fjölmörg færi í fyrra og skv xG tölfræðinni hefði hann getað skorað fleiri mörk en raun bar vitni. Schade hefur einnig farið á kostum á undirbúningstímabilinu og skoraði tvö mörk ásamt því að leggja upp önnur tvö í 7-0 sigri gegn Eintracht Frankfurt. Hann virðist hafa unnið sér inn byrjunarliðssæti á vinstri kantinum og Brentford á gott leikjaprógram í byrjun tímabils og þurfa ekki að hafa áhyggjur af Evrópukvöldum. Schade kostar aðeins 6.0m í Fantasy og er í 3,4% liða.

Vonandi koma einhverjir af þessum leikmönnum að góðum notum í þínu liði!


Þú finnur 38 umferðir á Instagram, Tiktok, Facebook og X @38umferdir.

Það borgar sig að fylgjast með 38 umferðum í allan vetur á hlaðvarpsveitu Fotbolta.net.


Luka Vuskovic hefur verið iðinn við kolann í markaskorun í Bundesligunni

Luka Vuskovic hefur verið iðinn við kolann í markaskorun í Bundesligunni

Canon

Mynd: Brighton

Marco Palestra er orkumikill í vængbakverðinum hjá Chelsea enda mikill kaffisvelgur

Marco Palestra er orkumikill í vængbakverðinum hjá Chelsea enda mikill kaffisvelgur

Canon

Mynd: Chelsea

Tarik Muharemovic er öflugur í að skila varnarframlagi og skoraði laglegt mark í lokaleik undirbúningstímabilsins

Tarik Muharemovic er öflugur í að skila varnarframlagi og skoraði laglegt mark í lokaleik undirbúningstímabilsins

Canon

Mynd: Leeds

Kiernan Dewsbury-Hall fór vel af stað á Hill Dickinson vellinum á síðasta tímabili og fær hærri verðmiða í ár

Kiernan Dewsbury-Hall fór vel af stað á Hill Dickinson vellinum á síðasta tímabili og fær hærri verðmiða í ár

Canon

Mynd: Everton

Kevin Schade var duglegur að koma sér í færi á síðasta tímabili og vonast til að færanýtingin batni í ár

Kevin Schade var duglegur að koma sér í færi á síðasta tímabili og vonast til að færanýtingin batni í ár

Canon

Mynd: EPA

Erling Haaland er dýrasti en jafnframt vinsælasti leikmaðurinn í Fantasy leiknum og situr í 69,8% liða og kostar 15.5m

Erling Haaland er dýrasti en jafnframt vinsælasti leikmaðurinn í Fantasy leiknum og situr í 69,8% liða og kostar 15.5m

Canon

Mynd: Eurofoot/X

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.