Fotbolti.net
19.08.26 - 18:17
Kári Snorrason

Efar þátttöku Daníels í einvíginu - „Óþarfi að horfa í þann leik“

Sæti í Sambandsdeildinni í húfi

Auglýsing
Sölvi Geir Ottesen.

Sölvi Geir Ottesen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur tekur á móti Borac Banja Luka, meisturum Bosníu og Hersegóvínu, í umspili Sambandsdeildarinnar annað kvöld á Víkingsvelli.

Borac vann bosnísku deildina með talsverðum yfirburðum á síðustu leiktíð og endaði fimmtán stigum fyrir ofan Zrinjski Mostar, liðið sem Valur sló út úr forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 og er mikið í húfi en sigurliðið í einvíginu kemst í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, í Fossvoginum fyrr í dag.
Víkingar taldir mun sigurstranglegri gegn Borac
TENGT EFNI

Víkingar taldir mun sigurstranglegri gegn Borac

„Þetta eru skemmtilegir leikir með miklum tilfinningum og mikið undir. Þannig að þetta er virkilega stórt og spennandi verkefni sem er fyrir framan okkur. Við erum búnir að undirbúa okkur vel fyrir og tilbúnir að mæta af krafti inn í þetta einvígi,“ segir Sölvi.

Getum ekkert nýtt úr þeim leik
Víkingur mætti Borac fyrir tveimur árum síðan í Sambandsdeildinni. Leikurinn fór fram á Kópavogsvelli og vann þá Víkingur tveggja marka sigur á bosníska liðinu. Nikolaj Hansen og Karl Friðleifur skoruðu mörk Víkinga í leiknum.

Sölvi segir lítið sem Víkingur getur tekið úr þeim leik fyrir komandi einvígi. „Það eru töluverðar breytingar hjá þeim. Ég held að við getum ekkert nýtt okkur þann leik. Það eru líka miklar breytingar sem hafa átt sér stað á Víkingsliðinu þannig það er óþarfi að horfa í þann leik. Við erum búnir að skoða og greina þá vel síðustu daga. Við erum mjög spenntir að fá að kljást við þá.“

Daníel Hafsteins ekki með
Víkingar hafa verið án Daníels Hafsteinssonar í undanförnum leikjum. Sölvi efar að hann geti tekið þátt í einvíginu.

„Hann (Daníel) er ennþá í veseni með ökklan á sér, beinmar og eitthvað meira. Ég stórefa að hann verði klár í þetta einvígi. Annars eru flest allir klárir í einvígið. Við höfum verið að fá menn til baka sem eru að fá fleiri og fleiri mínútur. Það er mjög jákvætt,“ segir Sölvi að lokum.
Karl Friðleifur fagnar marki sínu gegn Borac í Sambandsdeildinni fyrir tveimur árum.

Karl Friðleifur fagnar marki sínu gegn Borac í Sambandsdeildinni fyrir tveimur árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn Borac létu sig ekki vanta á Kópavogsvöll.

Stuðningsmenn Borac létu sig ekki vanta á Kópavogsvöll.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verið frá í síðustu þremur leikjum Víkings.

Verið frá í síðustu þremur leikjum Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.