Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 4. sæti

19.08.26

Spáin fyrir enska - 4. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Núna er komið að því að opinbera hvaða lið endaði í fjórða sæti í sérstakri spá fréttafólks Fótbolta.net fyrir komandi keppnistímabili í ensku úrvalsdeildinni. Það er Manchester United.
Manchester United endaði í þriðja sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og það var ekki síst mikill léttir fyrir stuðningsmenn félagsins. United er aftur komið í Meistaradeildina, sem skiptir miklu máli bæði fjárhagslega og fyrir stuðningsmennina sem fá nú að sjá liðið spila fleiri leiki á stærsta sviðinu.

Félagið hittir naglann á höfuðið með sumarinnkaupunum síðasta sumar. Matheus Cunha, Bryan Mbeumo, Senne Lammens og Benjamin Sesko komu allir inn og stóðu undir væntingum, sem er afar sjaldgæft þegar fjórir leikmenn eru keyptir í einum glugga. Spurningin er hvort þeir geti tekið næsta skref og átt frábært tímabil sem hjálpar United að blanda sér í alvöru titilbaráttu.

Síðasta tímabil var þó sveiflukennt. Rúben Amorim náði aldrei almennilega að koma liðinu á flug og sigurhlutfall hans var langt frá því sem ætlast er til hjá Manchester United. Hann tók þó til í leikmannahópnum og það er eitthvað sem Michael Carrick getur nú byggt ofan á. Carrick kom inn af gríðarlegum krafti og verður fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar á sínu fyrsta heila tímabili. Bjartsýnin er að aukast á Old Trafford, en hjá United getur stemningin breyst hratt.

Stjórinn: Michael Carrick fór langt fram úr væntingum þegar hann tók við Manchester United og lyfti liðinu úr sjöunda sæti í það þriðja. Stigafjöldi United undir hans stjórn var meira að segja betri en hjá Arsenal, sem segir sitt um hversu sterk áhrif hann hafði á liðið. Carrick hefur komið inn með ró og yfirvegun sem hefur vantað á Old Trafford undanfarin ár. Eftir að hafa lyft United upp í þriðja sætið fær Carrick nú tækifæri til að sanna að þetta hafi ekki aðeins verið skammtímaviðsnúningur.
Spáin fyrir enska - 4. sæti

Mynd: EPA

Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár?
TENGT EFNI

Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár?



Leikmannaglugginn: United missti Casemiro en hefur bætt við sig tveimur miðjumönnum og er sá þriðji á leiðinni í Carlos Baleba. Stuðningsmenn Man Utd vonast til að fleiri leikmenn bætist við fyrir gluggalok.

Komnir:
Andrey Santos frá Chelsea - 50 milljónir punda
Youri Tielemans frá Aston Villa - 35 milljónir punda
Tynan Thompson frá Tottenham - 4 milljónir punda
Cristian Orozco frá Fortaleza CEIF - 700 þúsund pund
Karl Darlow frá Leeds - Á frjálsri sölu

Farnir:
Rasmus Höjlund til Napoli - 43,2 milljónir punda
Radek Vitek til Middlesbrough - 14 milljónir punda
Altay Bayindir til Celta Vigo - Á láni
Casemiro til Inter Miami - Á frjálsri sölu
André Onana til Trabzonspor - Áfram á láni
Spáin fyrir enska - 4. sæti

Mynd: EPA

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob


Lykilmaður: Bruno Fernandes
Var valinn leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni og fór gjörsamlega á kostum þar sem hann bætti stoðsendingamet deildarinnar með því að leggja upp 21 mark. Bruno Fernandes er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Man Utd og er fyrirliði liðsins. Hann tekur allar aukaspyrnur, hornspyrnur og vítaspyrnur og er með ótrúlega tölfræði þegar kemur að því að skora og leggja upp mörk.

Gaman að fylgjast með: Benjamin Sesko
Það verður mjög áhugavert að fylgjast með Andrey Santos eftir komu hans frá Chelsea, en það verður hvað mest spennandi að fylgjast með Sesko á sínu öðru tímabili. Hann sýndi flottar rispur á síðasta tímabili og skoraði tólf mörk í öllum keppnum, en núna er hann að fara inn í sitt annað tímabil á Old Trafford og kröfurnar verða meiri. Mun hann bæta við markafjölda sinn og sýna að hann er framtíðarnía félagsins?

Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan væri sú að United bindur enda á fjórtán ára titlaþurrð sína og verði Englandsmeistari. Það er erfitt að segja til um hversu raunhæft það er, en Carrick hefur gert svo vel hingað til að það er ekki útilokað allavega. Versta mögulega niðurstaðan er sú að Man Utd endi ekki í Meistaradeildarsæti og vinni ekki einn einasta titil.
Spáin fyrir enska - 4. sæti

Mynd: EPA

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni.
.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. Manchester United, 225 stig
5. Chelsea, 222 stig
6. Tottenham, 186 stig
7. Aston Villa, 178 stig
8. Brighton, 166 stig
9. Bournemouth, 135 stig
10. Newcastle, 128 stig
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin fyrir enska - 4. sæti

Mynd: Man Utd

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.