Fotbolti.net
19.08.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson

Tottenham vill þrjá nýja sóknarmenn fyrir gluggalok

Tottenham vill þrjá nýja sóknarmenn fyrir gluggalok
Canon

Mynd: EPA

Tottenham Hotspur hefur keypt inn þrjá leikmenn í sumar fyrir tæplega 250 milljónir punda, auk þess að fá þrjá öfluga menn inn á frjálsri sölu.
Félagið er á sama tíma búið að selja leikmenn fyrir um 150 milljónir og segir Sky Sports frá því að ekkert frí sé í vændum hjá stjórnendum félagsins fyrr en eftir næstu mánaðamót.

Stjórnin ætlar að styðja við bakið á Roberto De Zerbi eftir hörmulegt gengi í ensku úrvalsdeildinni síðustu tvö ár. De Zerbi var ráðinn í vor og stýrði Spurs frá afar óvæntri fallbaráttu á lokaumferðum tímabilsins.

Ítalski þjálfarinn er ekki nógu ánægður með valmöguleikana sem hann hefur í sóknarlínunni. Richarlison, Dominic Solanke, Mohammed Kudus, Xavi Simons, James Maddison, Dejan Kulusevski, Mathys Tel, Wilson Odobert og Mikey Moore eru sóknarleikmenn liðsins og má vænta að einhverjir þeirra skipti um félag fyrir gluggalok.

Tottenham er að reyna að fá Cody Gakpo úr röðum Liverpool og er hollenski kantmaðurinn búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningstilboði en félagsliðin eiga eftir að ná saman um kaupverð.

Félagið er einnig að reyna að kaupa Savinho úr röðum Manchester City, nýjan framherja og hægri bakvörð til að veita Pedro Porro samkeppni.

Omar Marmoush og Pedro Neto hjá Man CIty og Chelsea koma einnig til greina til að styrkja framlínuna.
Tottenham vill þrjá nýja sóknarmenn fyrir gluggalok
Canon

Mynd: EPA

Tottenham vill þrjá nýja sóknarmenn fyrir gluggalok
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.