19.08.26 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson
Framkvæmdastjórinn svarar: Forgangsatriði að kaupa bakvörð
Fundu ekki nógu góðan kost í fyrra

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Angus Kinnear, framkvæmdastjóri Everton, hefur svarað ummælum David Moyes þjálfara frá því í gær.

TENGT EFNI
Moyes: Við þurfum fleiri leikmenn
Moyes hvatti stjórnendur Everton til að fjárfesta í fleiri leikmönnum í sumarglugganum og segir Kinnear stöðuna vera góða.
Everton vantar nýjan hægri bakvörð og kantmann fyrir gluggalok, en liðið hefur úrvalsdeildartímabilið á heimavelli gegn Crystal Palace um helgina.
„Við erum ekki í slæmri stöðu á markaðnum. Við erum ennþá að reyna að ganga frá nokkrum félagaskiptum og það lítur vel út. Ég býst ekki við að þeir verði komnir til félagsins fyrir opnunarleikinn gegn Crystal Palace, sem var markmiðið," sagði Kinnear.
„Ég hef fulla trú á því að okkur takist að kaupa inn hægri bakvörð. Við reyndum það líka í fyrrasumar en fundum ekki nægilega góðan kost. Það er forgangsverkefni að styrkja bakvarðarstöðuna.
„Ég skil áhyggjur stuðningsmanna, forsætisráðherrann hefur meira að segja tjáð sig um málið. Þetta er grafalvarlegt ástand!"
Þarna átti Kinnear við ummæli Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, sem er stuðningsmaður Everton og hefur tjáð sig um bakvarðavandræði liðsins.
Jake O'Brien og Nathan Patterson eru hægri bakverðir Everton eftir að fyrirliðinn Séamus Coleman fór á frjálsri sölu.

Everton reynir við Diao og Geertruida

Mynd: EPA

Mynd: EPA