Fotbolti.net
19.08.26 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Arsenal vill helst að Nwaneri fari á láni

Ethan Nwaneri.

Ethan Nwaneri.

Canon

Mynd: EPA

Það er í forgangi hjá Arsenal að lána hinn 19 ára gamla Ethan Nwaneri þar sem Englandsmeistararnir vilja ekki selja hann alfarið.

Framtíð Nwaneri hefur verið mikið í umræðunni í félagaskiptaglugganum og hefur vakið mikinn áhuga.
Arteta: Einhverjir leikmenn þurfa líklegast að fara
TENGT EFNI

Arteta: Einhverjir leikmenn þurfa líklegast að fara

Nwaneri var ekki valinn í leikmannahópinn í leiknum gegn Manchester City um Samfélagsskjöldinn og vakti það athygli.

Arsenal gerir sér grein fyrir því að að Nwaneri er á þeim stað á ferlinum að það myndi hjálpa honum að spila reglulega aðalliðsbolta.

Miðað við úrvalið hjá Arsenal virðist ólíklegt að Nwaneri spili mjög mikið fyrir liðið á þessu tímabili.

Í síðustu viku sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, að hann vildi halda Nwaneri hjá félaginu en það þyrfti að skoða hvað væri best fyrir leikmanninn til lengri tíma litið.

AC Milan, Red Bull Leipzig, Borussia Dortmund og Fulham eru meðal félaga sem hafa sýnt Nwaneri áhuga.

Gabriel Jesus, Gabriel Martinelli og Fabio Vieira eru meðal leikmanna sem félagið er opið fyrir að selja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.