19.08.26 - 13:00
Elvar Geir Magnússon
Mourinho við Vini: Ekki þess virði að fara frá Real Madrid

Jose Mourinho er mættur aftur til Madrídar.

Mynd: EPA

Vinicius Junior.

„Vini, hvert viltu fara? Þú hefur bara verið í Brasilíu og þú þekkir bara Real Madrid. Þú skilur bara Real Madrid þegar þú ferð þaðan. Þá gerir þú þér grein fyrir því hvað Real Madrid er. Ekki fara, það er ekki þess virði."
Þetta segist Jose Mourinho hafa sagt við Vinicius Jr til að sannfæra hann um að vera áfram hjá Real Madrid. Brasilíska stórstjarnan skrifaði undir nýjan sex ára samning nýlega eftir að hafa verið orðaður við Arsenal og fleiri félög.
„Þetta var það eina sem ég sagði við hann. Vinicius er ástfanginn af Real Madrid," segir Mourinho sem tók aftur við Real Madrid í sumar.

TENGT EFNI
Vini Jr framlengir við Real Madrid til 2032 (Staðfest)
Rodri var í vafa
Real Madrid hefur ekki unnið stóran titil í tvö ár en Mourinho á að breyta því. Félagið reyndi að fá spænska miðjumanninn Rodri sem á endanum fór til Barcelona frá Manchester City.
„Við töluðum nokkrum sinnum saman og Real Madrid bauð honum gott tilboð. Rodri var með efasemdir og hans vafi bjuggu til efasemdir hjá mér. Hann er margnaður leikmaður en hjá Real Madrid getur þú ekki verið með leikmenn sem þurfa að hugsa sig tvisvar um að koma. Ég óska honum þess besta, ekki því allra besta samt," segir Mourinho.

Rodri fór til Barcelona.

Mynd: EPA