Fotbolti.net
19.08.26 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Unglingalandsliðsmaður skrifar undir hjá Blikum

Unglingalandsliðsmaður skrifar undir hjá Blikum
Canon

Mynd: Breiðablik

Darri Kristmundsson hefur undirritað sinn fyrsta samning við Breiðablik. Í tilkynningu Breiðabliks kemur ekki fram hversu langur samningurinn er.

Hann er 16 ára og spilar bæði með 2. og 3. flokki félagsins.

Hann á að baki níu leiki fyrir yngri landsliðin og hefur verið hluti af U17 ára landsliðinu sem fer í undankeppni EM í haust. Darri var í æfingahópnum sem kom saman í síðustu viku.
Þrír aðrir Blikar voru í æfingahópnum. Það voru þeir Arnar Bjarki Gunnleifsson, Óðinn Sturla Þórðarson og markvörðurinn Elmar Ágúst Halldórsson.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.