18.08.26 - 21:39
Ívan Guðjón Baldursson
Segir Benoný vera efnilegastan í League One
Bróðir Archie Gray er í öðru sæti

Mynd: Stockport

Mynd: Stockport County

Mynd: Stockport
Fréttamaðurinn Samuel Armitage, sem sérhæfir sig í ensku neðri deildunum, setti saman átta manna lista yfir efnilegustu leikmenn League One deildarinnar.

TENGT EFNI
Benoný Breki og Stockport koma á flugi inn í tímabilið
League One er þriðja efsta deildin á Englandi og er Benoný Breki Andrésson, framherji Stockport County, efstur á lista hjá Armitage.
Benoný er 21 árs gamall og skoraði 3 mörk í 17 deildarleikjum á síðustu leiktíð sem einkenndist af meiðslavandræðum. Tímabilið á undan setti hann 4 mörk í 11 deildarleikjum.
Ef Benoný heldur sér frá meiðslum gæti þetta orðið hans tímabil segir Armitage í grein sinni. Hann mun fá tækifæri í fremstu víglínu næstu mánuði þar sem Adama Sidibeh, keppinautur hans um byrjunarliðssæti, er að glíma við meiðsli.
Benoný mun því berjast við Kyle Wootton og Mikael Mandron um byrjunarliðssæti næstu vikurnar.
1. Benoný Breki Andrésson (Stockport)
2. Harry Gray (Sheffield Wed. á láni frá Leeds)
3. Jake Richards (Luton Town)
4. Tommy Watson (Leicester City á láni frá Brighton)
5. Louis Page (Leicester City)
6. Tom Iorpenda (Huddersfield)
7. Sulyman Krubally (Burton)
8. Patrick Kelly (Barnsley)