19.08.26 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Sérstakt ákvæði til að eignast meirihluta í Liverpool


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Jeff Bezos, stofnandi Amazon og einn af allra ríkustu mönnum heims, er partur af fjárfestahóp sem keypti um 38% hlut í Liverpool á dögunum og getur nýtt sérstakt ákvæði til að eignast meirihluta í félaginu.
Verðið sem fjárfestahópurinn greiddi fyrir hlutinn miðar við að Liverpool sé metið á rúmlega 5,5 milljarða punda. Fyrrnefnt ákvæði gildir næstu 12 mánuði og getur fjárfestahópurinn því keypt enn stærri hlut í félaginu á sama verðlagi.
Fjárfestahópurinn 1892 Holdings stendur fyrir kaupunum og heldur Fenway Sports Group 62% meirihluta. Amit Bhatia fer fyrir fjárfestahópnum og verður varaforseti Liverpool.

Fjárfestahópurinn 1892 Holdings stendur fyrir kaupunum og heldur Fenway Sports Group 62% meirihluta. Amit Bhatia fer fyrir fjárfestahópnum og verður varaforseti Liverpool.

TENGT EFNI
