Fotbolti.net
19.08.26 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fjölskyldan kemur í veg fyrir félagaskipti til Newcastle

Fjölskyldan kemur í veg fyrir félagaskipti til Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Framtíð portúgalska miðjumannsins Joao Palhinha er í óvissu. Það eru nokkur félagslið áhugasöm um að tryggja sér krafta hans en óljóst er hvar hann endar.
Bayern hafnaði tilboði Aston Villa
TENGT EFNI

Bayern hafnaði tilboði Aston Villa

Palhinha er samningsbundinn Þýskalandsmeisturum FC Bayern en er ekki í byrjunarliðsáformum Vincent Kompany þjálfara.

Benfica, Aston Villa og Newcastle vilja fá miðjumanninn til liðs við sig og vill Palhinha sjálfur helst spila í ensku úrvalsdeildinni.

Bayern hefur hafnað nokkrum tilboðum frá Aston Villa í leikmanninn og þá er fjölskylda Palhinha að halda honum frá félagaskiptum til Newcastle. Líklegasti áfangastaðurinn er því orðinn Benfica, en Palhinha er uppalinn hjá erkifjendunum í Sporting CP.

Fjölskylda leikmannsins býr í Lissabon, höfuðborg Portúgal, og vill ekki að hann skipti til Newcastle útaf það eru ekki bein flug þangað.

Newcastle hefur mikinn áhuga á Palhinha og segir einn heimildarmaður Sky Sports að félagið sé reiðubúið til að borga einkaflugvél til að flytja fjölskyldu hans á milli borganna vikulega. Það gæti reynst nóg til að sannfæra hann um félagaskiptin, en myndi bera talsverðan aukakostnað í för með sér fyrir félagið.

Newcastle vill fá Palhinha í sínar raðir til að hjálpa við að fylla í skörðin sem mynduðust við sölurnar á Sandro Tonali og Bruno Guimaraes í sumar.

Fyrsti kostur fyrir Palhinha sjálfan eru félagaskipti til Aston Villa, enda eru bein flug í boði frá Lissabon til Birmingham allan ársins hring. Fjölskyldan vill sjá hann skipta yfir í portúgalska boltann þó hann geti búist við lægri launapakka þar.

Palhinha er 31 árs gamall og með tvö ár eftir af samningi við Bayern München. Stórveldið vill um 25 til 30 milljónir evra til að selja miðjumanninn, eftir að hafa borgað rúmlega 50 milljónir til að kaupa hann úr röðum Fulham fyrir tveimur árum.
Fjölskyldan kemur í veg fyrir félagaskipti til Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Fjölskyldan kemur í veg fyrir félagaskipti til Newcastle
Canon

Mynd: Arsenal

Fjölskyldan kemur í veg fyrir félagaskipti til Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.