Fotbolti.net
19.08.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

„Allir þurfa að fara að fá niðurstöðu“ - Tjáir sig um Man City ákærurnar

Etihad leikvangurinn, heimavöllur Man City.

Etihad leikvangurinn, heimavöllur Man City.

Canon

Mynd: EPA

Enn er ekki komin niðurstaða í stóra Manchester City málið en það hefur verið í kerfinu í þrjú og hálft ár. Félagið fékk 115 ákærur vegna meintra fjármálabrota í ensku úrvalsdeildinni.

Richard Garlick, framkvæmdastjóri Manchester City, hefur tjáð sig og segir að allir sem tengjast deildinni vilji fá niðurstöðu sam allra fyrst.

„Þetta hefur tekið langan tíma. Allir vilja að þetta komist á hreint og vita hvað gerist næst. En þetta er eitthvað sem ég stjórna ekki, ég vona bara að það komi niðurstaða fljótlega," segir Garlick.
Glórulaust hversu langan tíma Man City málið tekur
TENGT EFNI

Glórulaust hversu langan tíma Man City málið tekur

Manchester City hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu og Richard Masters, framkvæmdastjóri ensku úrvalsdeildarinnar, viðurkennir að málið taki lengri tíma en búist var við.

„Þetta er gríðarlega flókið mál en við þurfum að fylgja ferlinu," segir Masters.
„Allir þurfa að fara að fá niðurstöðu“ - Tjáir sig um Man City ákærurnar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.