19.08.26 - 17:48
Ívan Guðjón Baldursson
Julián Alvarez ekki í hóp fyrir opnunarleikinn
Búinn að biðja liðsfélagana afsökunar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Diego Simeone þjálfari Atlético Madrid segir að stjörnuleikmaður liðsins Julián Alvarez sé ekki til sölu þrátt fyrir mikinn áhuga frá nokkrum af stærstu félagsliðum Evrópu.

TENGT EFNI
Alvarez bað liðsfélagana afsökunar - Fer ekki til Barcelona
Alvarez viðurkenndi fyrr í sumar að hann vildi skipta yfir til Spánarmeistara Barcelona, en Atlético neitar að selja hann. Alvarez er 26 ára gamall og með fjögur ár eftir af samningi.
Þessi argentínski landsliðsmaður, sem var í liðinu sem vann HM 2022 og endaði í öðru sæti á HM í sumar, er ekki í leikmannahópi Atlético sem tekur á móti nýliðum Málaga í fyrstu umferð nýs deildartímabils á Spáni.
„Allir innan félagsins eru búnir að segja að Julián sé ekki til sölu, meira að segja eigandinn. Það er augljóst að hann verður ekki seldur í sumar," sagði Simeone. „Við erum að gera okkar besta til að hjálpa leikmanninum í gegnum þennan erfiða kafla svo hann verði tilbúinn að spila fyrir okkur í haust.
„Hann verður líklega ekki með í opnunarleiknum útaf því að hann er ekki í réttu hugarástandi, en hann er ekki til sölu. Stjórnendur hafa tjáð sig og eigandinn líka. Þegar eigandinn tjáir sig er það svolítið eins og þegar dómari tjáir sig í dómsal. Það er enginn að fara að breyta þessari ákvörðun.
„Við vonum að Julián muni vera upp á sitt besta í vetur."