19.08.26 - 14:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Daníel Tristan að yfirgefa Malmö

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Landsliðsmaðurinn Daníel Tristan Guðjohnsen er samkvæmt heimildum Daniel Kristoffersson á Aftonbladet á förum frá Malmö.
Sænski blaðamaðurinn segir að Arminia Bielefeld í Þýskalandi vilji fá framherjann á láni með kaupmöguleika.

Daníel Tristan hefur lítið spilað með Malmö á tímabilinu undir stjórn Gaute Helstrup og segir í grein Aftonbladet að hann sé á förum frá félaginu.
Daníel Tristan var hluti af hópnum sem vann sænska titilinn 2023 og hefur alls leikið 34 leiki með Malmö, skorað fimm mörk og lagt upp önnur fimm í himinnbláu treyjunni.
Á þessu tímabili hefur Daníel einungis byrjað einn leik í deildinni. Hann er samningsbundinn Malmö út árið 2028. Hann er fæddur árið 2006 og hefur spilað sex A-landsleiki.
Bielefeld er með þrjú stig eftir tvær umferðir í þýsku B-deildinni en liðið endaði í 13. sæti deildarinnar í fyrra.