19.08.26 - 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Uppaldir leikmenn skrifa undir hjá Val

Málfríður Anna og Kolbrá Una faðmast.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Málfríður Anna og Kolbrá Una faðmast.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þær Glódís María Gunnarsdóttir og Kolbrá Una Kristinsdótir hafa framlengt samninga sína við Val og eru nú samningsbundnar félaginu út 2029.
Báðar eru þær fæddar árið 2006 og uppaldar hjá félaginu. Kolbrá Una hefur verið í nokkuð stóru hlutverki á þessu tímabili, komið við sögu í 15 leikjum í Bestu deildinni.
Glódís hefur spilað sex leiki í Bestu deildinni og einnig leikið með 2. flokki félagsins.

Kolbrá Una á að baki 30 leiki fyrir yngri landsliðin og Glódís María hefur spilað átta leiki.
Valur situr í 9. sæti Bestu deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir fram að skiptingu. Næsti leikur Vals er útileikur gegn Þór/KA á föstudag.

Glódís María.

Mynd: Valur