Fotbolti.net
19.08.26 - 09:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Franski boltinn

Pogba yfirgefur Mónakó (Staðfest)

Pogba yfirgefur Mónakó (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Paul Pogba og Mónakó hafa náð samkomulagi um riftun á samningi leikmannsins við félagið.

Pogba, sem er 33 ára miðjumaður, kom til Mónakó fyrir rúmu ári og skrifaði þá undir tveggja ára samning. Hann kom til Mónakó eftir að hafa yfirgefið Juventus og afplánað 18 mánaða bann frá fótbolta eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.
Pogba spilaði einungis í sex leikjum á síðasta tímabili vegna meiðsla og voru mínúturnar einungis 115. Hann meiddist á vinstra læri á undirbúningstímabilinu og í kjölfarið náðist samkomulag um riftun.

Mónakó segir að skilmálar í tengslum við endurkomu Pogba á völlinn hafi einingis verið uppfylltir að hluta og því var farið í viðræður um riftun.

Pogba, sem vann HM 2018 með franska landsliðinu, er núna án félags.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.