Fotbolti.net
19.09.16 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Hallbera: Fanndís skammar mig þegar ég fer að læra

Auglýsing
Hallbera: Fanndís skammar mig þegar ég fer að læra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Hallbera Guðný Gísladóttir, vinstri bakvörður íslenska landsliðsins, fékk ekki langan tíma til að fagna eftir að sætið á EM var gulltryggt á föstudaginn. Beint eftir 4-0 sigurinn á Slóveníu fór Hallbera í próf í skólanum.
„Ég fór beint í heimapróf í viðskiptalögfræði. Það var ákveðinn mood killer en við gerum kannski eitthvað skemmtilegra eftir leik á morgun,\" sagði Hallbera við Fótbolta.net í dag.

„Ég fékk níu í prófinu svo ég er sátt. Skólinn situr svolítið á hakanum þegar við erum í landsliðinu, sérstaklega af því að ég er með Fanndísi í herbergi. Hún skammar mig þegar ég fer að læra og segir að ég sé leiðinleg.\"

Ísland mætir Skotlandi í uppgjöri efstu liðanna í riðlinum klukkan 17:00 á morgun. Ísland vann fyrri leikinn 4-0 en Hallbera býst við erfiðari leik á morgun.

„Ég reikna með að þær sýni okkur aðeins meiri virðingu og verjist meira á móti okkur. Við ætlum að sýna þeim að það var ekki tilviljun hvernig við unnum þær úti.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.