21.11.26 - 21:39
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: McTominay gerði gæfumuninn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Napoli 1 - 0 Torino
1-0 Scott McTominay ('73 )
1-0 Scott McTominay ('73 )
Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay gerði gæfumuninn þegar Napoli tók á móti Torino í kvöldleiknum í efstu deild á Ítalíu.
Napoli var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora þrátt fyrir góð færi. Ítalski landsliðsmaðurinn Antonio Vergara fór meiddur af velli á 13. mínútu og kom Kevin De Bruyne, sem vill flytja frá Napólí í janúarglugganum, inn af bekknum.
Staðan var markalaus í leikhlé og reyndist síðari hálfleikurinn nokkuð jafn, þar sem gestirnir frá Torino virtust líklegri til að skora. Allt þar til McTominay lét til skarar skríða eftir að hann fékk alltof mikinn tíma og pláss. Hann lét vaða með föstu og hnitmiðuðu skoti rétt fyrir utan D-bogann og söng boltinn í netinu.
Torino fann ekki svar svo lokatölur urðu 1-0 fyrir heimamenn, sem eru komnir með 18 stig eftir 12 umferðir. Torino situr eftir með 14 stig.