Fotbolti.net
21.11.26 - 18:05
Ívan Guðjón Baldursson

FIFPro gagnrýnir orðræðu FC Bayern harðlega

FIFPro gagnrýnir orðræðu FC Bayern harðlega
Canon

Mynd: EPA

Alþjóðasamtök atvinnumanna í fótbolta, FIFPro, hafa gagnrýnt orðræðu Þýskalandsmeistara FC Bayern harðlega þar sem stjórnendur félagsins virðast vera að leggja Jamal Musiala í einelti með ummælum sínum við fjölmiðla.
Kom með óþarfa ummæli um Musiala
TENGT EFNI

Kom með óþarfa ummæli um Musiala

Musiala hefur átt í meiðslavandræðum á upphafi nýs tímabils auk þess að vera nýlega byrjaður að glíma við taugasjúkdóm og hefur því lítið getað komið við sögu á tímabilinu.

Musiala hefur verið hjá Bayern frá 16 ára aldri og verið afar mikilvægur hlekkur í byrjunarliðinu, auk þess að eiga 10 mörk í 46 landsleikjum með Þýskalandi þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gamall.

„FIFPro hefur verulegar áhyggjur á endurteknum ummælum stjórnenda FC Bayern München í fjölmiðlum sem hafa meðal annars verið að véfengja gildi fullkomlega löglegs samnings Jamal Musiala við félagið. Að mati FIFPro er þetta skipulögð herferð með það sem markmið að setja aukna pressu á Musiala og talsmenn hans fyrir mögulegar viðræður. Félag af sömu stærðargráðu og Bayern ætti að vita betur," segir meðal annars í yfirlýsingu FIFPro.

„Bayern ber skylda að hugsa vel um Musiala og aðra samningsbundna leikmenn. Óvissa um framtíðina getur tekið mikinn toll á andlega heilsu leikmanna, sérstaklega þegar þeir eru að glíma við meiðslavandræði. Að ræða heilsu og framtíð Musiala opinberlega með þessum hætti er skaðlegt, þetta eru mál sem ætti að ræða við leikmanninn sjálfan og talsmenn hans frekar en fjölmiðla.

„Samninga ber að virða. Meiðsli eða léleg frammistaða gefur félagsliði ekki réttinn á því að endursemja við leikmenn. Alveg eins og frábær frammistaða gefur leikmanni ekki sjálfkrafa rétt á launahækkun. Fótboltafélög, deildir og leikmannasamtök eru öll sammála um að samningsöryggi sé grundvallaratriði í fótbolta. Samningar vernda félög alveg jafn mikið og þeir vernda fótboltamenn.

„FIFPro stendur með Jamal Musiala og öllum leikmönnum sem virða sína samninga. Við búumst við að vinnuveitendur geri það líka."


Musiala er samningsbundinn Bayern til sumarsins 2030.


FIFPro gagnrýnir orðræðu FC Bayern harðlega
Canon

Mynd: EPA

FIFPro gagnrýnir orðræðu FC Bayern harðlega
Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Dortmund10+1024
2Bayern10+2022
3Freiburg10+1122
4RB Leipzig10+1821
5Leverkusen10+719
6Werder9+215
7Frankfurt10-415
8Stuttgart10013
9Elversberg10-213
10Hoffenheim10-212
11Hamburger9-1012
12Mainz9-110
13Köln10-410
14Paderborn10-710
15Augsburg909
16Schalke 0410-67
17Union Berlin10-187
18Gladbach10-144
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.