21.11.26 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
Maresca: Augljóst að þetta var ekki brot

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enzo Maresca þjálfari Manchester City er ósammála stórri dómaraákvörðun sem var tekin í jafntefli gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
Umdeilt mark dæmt af Haaland - „Ég var með boltann í höndunum“
Ítalinn svaraði spurningum að leikslokum og ræddi bæði Erling Haaland og Ayyoub Bouaddi. Hann er ósáttur með markið sem var dæmt af Haaland í fyrri hálfleik.
„Ég skoðaði markið eftir leikinn og frá mínu sjónarhorni er augljóst að þetta var ekki brot, en ég er því miður ekki sá sem tekur ákvarðanirnar. Erling var alveg viss um markið myndi standa þegar það var í skoðun í VAR herberginu, en dómarinn var á öðru máli," sagði Maresca, áður en hann var spurður út í Bouaddi sem byrjaði með Elliot Anderson á miðjunni.
„Ayyoub og Elliot voru báðir mjög góðir í dag. Við notuðum Elliot aðeins framar en vanalega og hann skoraði glæsilegt mark auk þess að gera sig hættulegan þrisvar eða fjórum sinnum í kringum vítateiginn. Við erum að leita að lausnum og þetta er ný lausn fyrir okkur. Við þurfum að ná meiri stöðugleika í frammistöðum og úrslitum."