Fotbolti.net
22.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Gult spjald fyrir að þruma boltanum af vítapunktinum

Gult spjald fyrir að þruma boltanum af vítapunktinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var áhugavert atvik sem átti sér stað í bandaríska háskólaboltanum þegar Santa Clara og Stanford áttust við.
Stanford var marki yfir og fékk dæmda vítaspyrnu en Ally Harrison, markvörður Santa Clara, ákvað að vera með smá bíósýningu áður en andstæðingurinn spyrnti.

Leikmaður Stanford gerði sig tilbúinn að taka spyrnuna þegar Harrison spretti af marklínunni og þrumaði boltanum í burtu til að tefja.

Dómarinn gaf gult spjald fyrir en Harrison tókst að tefja vítaspyrnuna um heila mínútu með þessu athæfi sínu. Hún vonaðist til að taka vítaskyttu Stanford á taugum en það gekk ekki þar sem andstæðingurinn skoraði nokkuð örugglega úr spyrnunni til að tvöfalda forystuna.


Santa Clara goalkeeper Ally Harrison tries to ice the penalty kick taker by taking an intentional yellow card for timewasting
by
u/BigDanRTW in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.