Fotbolti.net
21.11.26 - 22:03
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Mbappé klúðraði víti áður en Espí bjargaði sigri

Spánn: Mbappé klúðraði víti áður en Espí bjargaði sigri
Canon

Mynd: EPA

Það fóru fjórir leikir fram í efstu deild spænska boltans fyrr í dag þar sem Real Madrid tók á móti Celta Vigo í kvöldleiknum.
Pablo Durán náði óvænt forystunni fyrir gestina eftir frábæra sókn snemma leiks og var mikið fjör í opnum og skemmtilegum fyrri hálfleik.

Kylian Mbappé fékk besta færið til að jafna þegar hann steig á vítapunktinn en lyfti boltanum hátt yfir markið. Gestirnir frá Vigo komust nálægt því að tvöfalda forystuna en tókst ekki, svo þeir leiddu með einu marki í hálfleik á Santiago Bernabéu.

Síðari hálfleikurinn var talsvert rólegri en Jude Bellingham jafnaði metin eftir góðan undirbúning frá Vinícius Júnior og Mbappé. Real tókst ekki að skapa mikið á lokakaflanum og þegar allt stefndi í jafntefli kom Carlos Espí inn af bekknum til að skora sigurmarkið. Þetta er í fjórða sinn á tímabilinu sem Espí kemur inn af bekknum til að skora mikilvægt mark á lokamínútunum.

Antony skoraði þá fyrsta markið í nágrannaslagnum í Sevilla. Hann náði forystunni fyrir Real Betis en heimamenn í liði Sevilla voru talsvert sterkari aðilinn. Þeim tókst þó ekki að finna jöfnunarmark fyrr en undir lokin, þegar Álvaro Valles markvörður Betis gerðist sekur um hrikaleg mistök og missti lausan bolta inn fyrir marklínuna.

Betis er í fjórða sæti eftir jafnteflið, með 27 stig úr 13 leikjum. Sevilla er átta stigum og tveimur sætum neðar á stöðutöflunni.

Alavés lagði þá Deportivo La Coruna að velli og komst Denis Suárez á blað í sigrinum. Alavés klifraði yfir Deportivo á stöðutöflunni með þessum sigri og sitja liðin um miðja deild.

Valencia náði að lokum í gríðarlega dýrmæt stig á útivelli gegn Rayo Vallecano og lyfti sér þar með úr fallsæti.

Real Madrid 2 - 1 Celta Vigo
0-1 Pablo Duran ('6 )
0-1 Kylian Mbappe ('38 , Misnotað víti)
1-1 Jude Bellingham ('66 )
2-1 Carlos Espi ('85)

Sevilla 1 - 1 Real Betis
0-1 Antony ('50 )
1-1 Kike Salas ('91 )

Alaves 3 - 1 Deportivo La Coruna
1-0 Angel Perez ('2 )
1-1 Nahuel Tenaglia ('41 , sjálfsmark)
1-1 Lucas Boye ('55 , Misnotað víti)
2-1 Lucas Boye ('62 )
3-1 Denis Suarez ('90 )

Rayo Vallecano 0 - 1 Valencia
0-1 Jose Copete ('41 )
Spánn: Mbappé klúðraði víti áður en Espí bjargaði sigri
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.