Fotbolti.net
21.11.26 - 18:33
Ívan Guðjón Baldursson

Andrea skoraði í fjórða sigrinum í röð

Andrea skoraði í fjórða sigrinum í röð
Canon

Mynd: Anderlecht

Kvennaboltinn
Andrea Rut Bjarnadóttir var á sínum stað í byrjunarliði Anderlecht og skoraði fyrsta mark leiksins í sigri á útivelli gegn Zulte Waregem.
Þetta var fjórði sigurinn í röð hjá Anderlecht sem vermir toppsæti belgísku deildarinnar með 24 stig eftir 9 umferðir - sex stigum fyrir ofan taplaust lið Club Brugge sem á leik til góða.

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir var einnig í byrjunarliði Anderlecht eins og vanalega og lék í 85 mínútur.

Parma vann þá mikilvægan sigur á Napoli í fallbaráttuslag á Ítalíu og horfði Birta Georgsdóttir á leikinn frá varamannabekknum.

Sædís Rún Heiðarsdóttir sat sömuleiðis á bekknum þegar Köln gerði jafntefli við Werder Bremen í efstu deild í Þýskalandi, en Sandra María Jessen er fjarri góðu gamni.

Köln er í efri hluta deildarinnar með 19 stig eftir 11 umferðir.

Að lokum var Hafrún Rakel Halldórsdóttir ekki í hóp hjá Bröndby sem fór létt með Aarhus í efstu deild í Danmörku. Bröndby situr í þriðja sæti, sjö stigum á eftir toppliði HB Köge.

FC Kaupmannahöfn átti að spila í danska boltanum en fresta þurfti leiknum út af miklu frosti í vellinum.

Zulte Waregem 1 - 3 Anderlecht

Parma 2 - 0 Napoli

Köln 2 - 2 Werder Bremen

Bröndby 4 - 1 Aarhus
Andrea skoraði í fjórða sigrinum í röð
Canon

Mynd: Parma

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.