Fotbolti.net
21.11.26 - 21:13
Ívan Guðjón Baldursson

Meistararnir misstu eina ómissandi leikmanninn

Meistararnir misstu eina ómissandi leikmanninn
Canon

Mynd: EPA

Spænski markvörðurinn David Raya gat ekki klárað 2-2 jafnteflisleik Arsenal gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag.
England: Madueke bjargaði stigi fyrir meistarana
TENGT EFNI

England: Madueke bjargaði stigi fyrir meistarana

Raya fór meiddur af velli eftir að hafa fundið fyrir sársauka í vinstri handlegg eða öxl og tók Kepa Arrizabalaga stöðu hans á milli stanganna.

Óljóst er hversu alvarleg meiðslin eru en Raya fer í myndatöku á morgun til að fá betri mynd af stöðunni.

Fótboltasérfræðingurinn Jamie Redknapp segist smeykur fyrir hönd Englandsmeistaranna sem eru með frábæran leikmannahóp og gæti Raya verið eini ómissandi byrjunarliðsmaðurinn.

„Arsenal er með tvo topp leikmenn í hverri stöðu á vellinum en núna gætu þeir lent í vandræðum. David Raya leit eins og hann væri að finna fyrir miklum sársauka og eru þetta mjög slæm meiðsli fyrir meistarana," segir Redknapp.

„Raya er eini leikmaðurinn í byrjunarliðinu sem er ómissandi. Kepa er ekki á hans gæðastigi, hann á erfitt með að höndla úrvalsdeildina. Við sáum hann í úrslitaleik deildabikarsins á síðustu leiktíð."

Kepa hefur verið bikarmarkvörður Arsenal og gerðist sekur um slæm mistök í tapi gegn Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins í mars.

„Núna þurfa þeir að nota Kepa á milli stanganna í nokkra leiki og það gæti reynst mjög erfitt bæði fyrir Kepa og liðið í heild. Þetta gæti verið mjög stór skellur fyrir Arsenal ef meiðsli Raya eru alvarleg út af því að hann er ómissandi partur af byrjunarliðinu.

„Raya er líklega besti markvörður úrvalsdeildarinnar og einn af þeim bestu í heimi."
Meistararnir misstu eina ómissandi leikmanninn
Canon

Mynd: EPA

Meistararnir misstu eina ómissandi leikmanninn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.