21.11.26 - 23:03
Ívan Guðjón Baldursson
34 ára Courtois búinn að framlengja

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois er búinn að framlengja samning sinn við spænska risaveldið Real Madrid um eitt ár. Samningurinn gildir til sumarsins 2028.

TENGT EFNI
Courtois að framlengja við Real Madrid
Fregnirnar bárust í gær, eftir að Real Madrid hafði tilkynnt um nýja samninga við Arda Güler og Aurélien Tchouaméni á síðustu dögum.
Courtois er 34 ára gamall og gaf ekki kost á sér með Belgíu í Þjóðadeildinni til að fá hvíld frá landsliðinu og gefa öðrum markvörðum tækifæri.
Markvörðurinn öflugi stefnir þó á að fara með Belgíu á næsta Evrópumót ef Mark van Bommel landsliðsþjálfari vill hafa hann með.
Courtois hefur spilað 349 leiki á rúmum átta árum með Real Madrid. Hann á þar að auki 115 landsleiki að baki og lék fyrir Chelsea, Atlético Madrid og Genk áður en hann skipti til Real.

???? Simplemente, @ThibautCourtois. https://t.co/8JwdU38PwZ
— Real Madrid C.F. (@realmadrid) November 20, 2026

Mynd: EPA